I don't need to watch the O.C. but it makes me happy...

Bjössakon

18.03.2008 14:57:20 / Bjöddn

Eins og ólétt kona...

Vikan búin að líða fljótt og nú er góður maður kominn í heimsókn... Ívar lenti í dag á Kastrup og fórum við félagar beint á Jensens Böfhus í steik og bjór... mmm hádegisbjór! Við ætlum að mála bæinn rauðann eins og ívar í eins og heila viku:klikk:

Á laugardaginn ákváðum ég, Biggi, Atli og Ranna að stofna keilukvöld... stefnan er að gera þetta einu sinni í mánuði því við fundum stað sem býður upp á mjög ódýra keilu, fuzzball og pool. Við sem sagt fórum þarna klukkan 9 á laugardaginn og komumst að því að kannan af bjór er mjög ódýr líka þannig að þær fóru sennilega um 6 þarna á ca 2 tímum. Þess má geta að ég vann keiluna með heilum 3 stigum þegar heildarstig allra leikjanna voru talin saman, kemur Atli:klikk:

En eftir það var kíkt niður á Pilegaarden þar sem margir íslendingar voru komnir saman, meistari Hlynur aka. "The White Terry Crews" tók á móti okkur og einnig vinur hans sem hafði það markmið að fylla alla á svæðinu með nýja Cult Fructs/vodka drykknum sínum... ÞAÐ TÓKST! Þegar ég kom heim ákvað ég að panta mér pizzu, ég fór á netið og pantaði pizzu, franskar og gos um 3 um nótt. Einhverju seinna vaknaði ég við eitthvað sem hljómaði eins og einhver væri að reyna að brjóta sér leið í gegnum hurðina. Ég stóð upp úr sófanum, þurrkaði slefið af kinninni og opnaði hurðina... stóð þá ekki brjálaður Indverji með kalda pizzu og gamlar franskar fyrir utan hjá mér og alveg jós skömmum yfir mig fyrir að opna ekki fyrr. Ég var svo allsgáður að ég sagði honum að hann hefði verið svo lengi að ég hefði einfaldlega sofnað við biðina... þetta var ekki sniðugt komment að hans mati því hann var búinn að reyna að vekja mig í ca hálftíma, hann bókstaflega henti pizzunni inn í íbúðina, hrifsaði 200 kallinn af mér og strunsaði niður stigann röflandi eitthvað óskiljanlegt. Það versta var að þetta kostaði ekki nema 160 krónur:haha:
Ég staulaðist inn í stofu, tók einn bita af pizzunni, hellti kóki í glas... áttaði mig á því að ég var eiginlega ekkert svangur og lagðist aftur á hliðina og sofnaði, frábært! Það var hins vegar mjög ánægjulegt að vakna morguninn eftir með heila pizzu við hliðina á sér, bara handa mér!!!

En þetta var geysilega gott kvöld... Hildur, Ágústa og Biggi komu svo um kvöldið og við græjuðum lasagna og allar græjur. Geysilega gott kvöld!

Nóg í bili... ps. Þið megið koma þökkum til kynmóður minnar ef þið sjáið hana... þökkum fyrir, harðfiskinn, páskaeggið og lakkrísinn sem hún sendi, góðir páskar framundan!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.03.2008 00:48:51 / Bjöddn

Luna´s diner

Mynd helgarinnar: White Chicks

Maður helgarinnar: Svarti massaði gaurinn í White Chicks

Atriði helgarinnar: Dansinn sem svarti massaði gaurinn tekur í White Chicks

Uss... erum við ekkert að grínast með hvað þessi maður er fyndinn? Hafið þið séð þessa mynd, þetta er sennilega ein af verstu myndum seinni ára en þessi "maður"
er náttúrulega bara hryllilega fyndinn og reddar þessari mynd alveg upp um 2 stjörnur upp á sínar spýtur!

En í fréttum er svona helst að ég tók prufuvakt á veitingastað/kaffihúsi í kvöld sem heitir Luna's diner. Mjög fínn staður á Christianshavn, eigandinn alveg raaaamm-samkynhneygður portúgali en það er bara betra. Það er eitthvað með þennan veitinga og kaffihúsabransa, menn virðast samkynhneygðast alveg uppúr öllu valdi við að starfa við þetta. Talandi um það að þá hef ég yfirleitt unnið við eitthvað líkamlega erfitt (utan við sundlaugina og íþróttahöllina heima) þannig að þetta er alveg fínasta tilbreyting, vonum bara að ég fari ekki að dansa á línunni í framhaldinu. Verð nú samt að viðurkenna að mig langaði strax á fyrsta kvöldi að dilla rassinum aðeins í nýju fínu mittis-svuntunni minni... það er eitthvað við það að vera með svuntu og halda á bakka sem fær mann til að labba eins og göngumaraþonmaður í slow motion. Þá er ég að tala um að efri parturinn má ekki hreyfast á meðan lappirnar ferðast um gólfið með mjúkum hreyfingum þannig að allt endar þetta með einhverjum mjög undarlegum mjaðmahreyfingum og rassadillingum. En ég er nú bara núbbsi í þessu... sjáum til hvað gerist ef ég fæ starfið!8|

Nóg af rugli í bili... ps. síðasti æfingaleikurinn á morgun og fyrsti deildarleikurinn á fimmtudaginn!!!

Enn meira ps... þið verðið bara að skoða hvað maðurinn er yfirnáttúrulega fyndinn... http://youtube.com/watch?v=Ay4jmc88vAM

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 16:38:58 / Bjöddn

Icelandair Open 2008

Jes... við hóuðum okkur nokkrir saman um daginn til að taka þátt í Icelandair Open innanhúsmóti 1. mars. Í liðinu voru meðal annarra ég, Böbbi, Kristján Gunnar, Oddur Guðmunds og Birkir Örn ásamt Atla, Jóa og Þránni. Eins og sjá má þá hefur 50% af liðinu spilað með Völsungi á ferlinum þannig að þetta stefndi í gott mót:klikk:

Við byrjuðum mótið vel og unnum okkar fyrsta leik 3-2 á móti besta liðinu frá Ísborg sem einmitt halda mótið í samstarfi við Icelandair. Eftir það var ekki aftur snúið og við unnum hvern leikinn á fætur öðrum. Unnum riðilinn okkar með fullt hús stiga eftir að hafa unnið FC Guðrún (handboltaliðið þeirra, sem var þó mun betra en fótboltaliðið) í lokaleiknum. Þess má geta að þeim leik átti Böbbi stórleik, skoraði öll okkar þrjú mörk, fékk hótanir um að vera kýldur í andlitið og setti einnig annað tveggja marka Guðrúnar. Sló í gegn!

Við héldum áfram og gerðum jafntefli 2-2 í undanúrslitunum, í framlengingu jöfnuðu svo DTU þegar 20 sekúndur voru eftir en Oddur gamli Guðmunds setti hann með flennihörðum skalla þegar um 4 sekúndur voru eftir og úrslitaleikurinn okkar. Við fórum á móti Færeyjingum í úrslitin og þar sem við höfðum unnið þá 2-1 í riðlinum okkar þá kom ekkert til greina að tapa, við reyndar lentum undir en ég náði svo að jafna í seinni hálfleik og Oddur kláraði þetta svo með stæð með tveimur mörkum undir lokin og kallarnir búnir að sigra þetta! Við fengum fram og til baka flugmiða köben-kef á manninn og af því að Færeyjingarnir urðu í öðru sæti þá fengum við miða á landsleik með íslenska landsliðinu líka... þá langaði ekkert rosalega að fljúga til íslands á leik með ísl. landsliðinu:haha:

En ég er strax búinn að panta mér flug fyrir verðlaunin og mun koma heim 11. apríl og fara aftur 20. apríl. Það vill svo skemmtilega til að Herrakvöld Völsungs er akkurat þann 12. apríl. Þvílík tilviljun!!! En ég hlakka til að skella mér heim... djöfull verður það ljúft!

Annars bið ég að heilsa í bili með nokkrum myndum... svo eru fleiri í albúminu undir Myndasöfn.






» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 21:55:11 / Bjöddn

Allt að gerast...

Jahá... langt síðan síðast hva?

Það er mikið búið að vera í gangi hérna og varla tími til að skrifa. Byrjum á endanum!

10. Akkurat núna er ég að spila skák á facebook... talandi um að það sé mikið að gera?

9. Síðasta þrijudag spilaði ég fyrsta leikinn með Vanløse IF og það gekk bara nokkuð vel, hann fór 2-2 og þeir vilja fá mig til að spila með þeim fram á sumar.

8. Daginn áður fór ég á fyrstu æfinguna með þeim og var að drepast úr þreytu! Það minnti mig á vinsælan brandara heima á Húsavík, "Ertu ekki í formi? Jú... Kökuformi";)

7. Áður var ég búinn að fara á æfingar hjá Fremad Amager og B 1903. Fínar æfingar en annað liðið þurfti ekki á markmanni að halda og hitt er ekki í nánast sama standard og VIF.

6. Á laugardaginn komandi er svo planið að spila á móti KB sem er einmitt varalið FC København.

5. Veit ekki hvernig stemmarinn verður fyrir því að ég sé að fara að spila þennan leik því ég var víst búinn að skrá mig í Icelandair Open með nokkrum félögum. Sjáum til...

4. Síðasta laugardag spilaði ég svo í pókermóti uppá Kagså, það var mjög gaman að prófa það en ekkert sem ég er að fara að leggja fyrir mig held ég.

3. Planið var að fara til Ítalíu um páskana og svo heim til Húsavíkur 11. til 20. apríl en þetta er allt í uppnámi nú þegar ég er kannski að fara að spila með liði hverja helgi fram á sumar.

2. Aðal fréttirnar eru samt að ég er orðinn einbúi. Er sem sagt einn hérna í íbúðinni, sem er reyndar alveg drulluflott bachelor íbúð en leigan kannski svoltið há þannig að maður er að leyta sér að vinnu og svona.

1. Nú er líka spurning hvernig sumarið verður því kannski þarf ég að segja íbúðinni upp þannig að ég losni við hana í lok júní. Þá er maður laus og liðugur og spurning hvort maður fari til Húsavíkur eða hvað... einhverjar hugmyndir???


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 20:17:42 / Bjöddn

Eru menn alveg heilir?

Er til eitthvað meira pirrandi en að vera í Solitaire og vera alveg við það að leysa kapalinn þegar maður nær loksins að koma spili út sem hefur lengi haldið öðru spili undir... og hvað gerist, JÚ spilið sem var undir er nákvæmlega sama helvítis spil...!!!

Ps. Ég var að kveikja á sjónvarpinu og áttaði mig strax á því að það er til eitthvað sem er meira pirrandi... KUYT ER Í BYRJUNARLIÐINU HJÁ LIVERPOOL Í MEISTARADEILDINNI...!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 12:11:43 / Bjöddn

Buxnaekla í Vestmanneyjum?

Var rétt í þessu að lesa um mann sem var tekinn við að brjótast inn í búð í Vestmanneyjum. Maðurinn braut glugga en sat fastur á maganum á glerbrotum sem voru eftir í gluggafalsinum. Tekið var sérstaklega fram að maðurinn var í nærbuxum einum fata.

Það eina sem mér datt í hug var... Hverju var maðurinn að ræna... vonandi buxum!


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 22:42:30 / Bjöddn

Du kan slik mine....

Var að fara í langa lestarferð áðan og settist inní lestina á móti eldri konu sem var að lesa dagblað í hægðum sínum! Þar sem að ég var að fara á endastöð lestarinnar þá hugsaði ég með mér að það yrði fínt að lesa blaðið hennar þegar hún væri farin útúr hægðum sínum.

Þessi kona hefur örugglega þjáðst af einhverjum fingurgóma sjúkdómi því það var greinilega þörf á því að gjörsamlega maka puttann út í munnvatni í hvert skipti sem hún fletti blaðinu. Ég hef aldrei skilið þessa áráttu að sleikja á sér puttann þegar maður flettir blöðum eða bókum... mér hefur aldrei fundist neitt sérstaklega erfitt að fletta blaðsíðum!

Niðurstaðan varð allavega sú að ég las ekki blaðið!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 19:27:49 / Bjöddn

Fremad Amager

Jeees... sit og er að bíða eftir fyrstu gestunum til að mæta á hvíínsveg. Liðið sem ætlar að taka þátt í Icelandair Open  ætlar að hittast og kynnast aðeins, taka fyrstu æfinguna. Æfingarnar verða nefnilega að vera af tveimur tegundum, fótbolta-æfingar og drykkju-æfingar. Mótið er þannig skipulagt að lokahófið er á föstudagskvöldi og svo er mótið sjálft á laugardeginum eftir... og já á lokahófinu fá menn pizzur og bjór! Þannig að menn verða að geta drukkið (eitthvað;) um kvöldið og spilað svo bolta daginn eftir. Þeir sem ætla að mæta í kvöld eru, ég, Biggi, Atli, Oddur og Böbbi... hugsanlega einhverjar af spússum þeirra.

Þið megið giska á hvernig æfing er í kvöld...

En annars er búið að vera fínt hérna fyrstu dagana, er bara búinn að vera að stússa ýmislegt og koma mér almennilega fyrir áður en partnerinn kemur. Fór á fyrstu æfinguna í gær með nýju liði sem heitir Fremad Amager, aðalliðið þeirra er í 3. efstu deild í danmörku, kannski svipað og 1. deildin heima. En ég byrja allavega að æfa með 2. liðinu þeirra og það er ágætt meðan maður er að koma sér í gang aftur. Sjáum svo til hvort þeir samþykki mig inn í aðalliðið þegar lengra dregur.

Bið að heilsa í bili...


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 19:48:57 / Bjöddn

Hveensvej 18, 1.tv.

Þá er maður kominn aftur til Kaupmannahafnar og bara fluttur inn. Ég lenti um hádegi í gær, fór og skoðaði íbúðina, náði í lyklana og fór svo heim til Bigga þar sem ég (eins og oft áður) fékk að gista um nóttina á dýnunni góðu. Biggi er reyndar fluttur niður í bæ líka þannig að það er ekki 2ggja klukkutíma ferðalag heim til hans eins og áður, sem er af hinu góða.

En íbúðin er bara ótrúlega fín og fór fram úr öllum björtustu vonum verð ég að segja. Parið sem á hana er bara yndælisfólk og þau skildu nánast allt eftir handa mér og Sibbu þannig að hér er nánast allt til alls. Allar græjur í eldhúsinu og fullt af diskum, glösum og öllu þannig að það er hægt að halda risa matarboð hérna. Svo er stofuborð, 4 stólar, sófi, skenkur, lítið stofuborð, sjónvarp, vcr, dvd, heimabíó og allar græjur bara. Meira að segja uppþvottavél... sem er nú ekki ónýtt8)

Annars er það að frétta að ég verð hérna einn þar til 2. feb en þá kemur Sigurborg, það verður samt ekkert stopp þar sem ég var að panta miða handa okkur á Mugison það sama kvöld en hann er að spila á Lille Vega þann 2. feb.

Þetta er allt mjög spennandi en ég ætla ekki að blogga yfir mig svona í fyrstu tilraun, þá gæti komið önnur pása! 


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 19:10:58 / Bjöddn

Myndir mánaðarins

Undanfarnar vikur hafa samtök sem kalla sig Timburmenn hisst nokkrum sinnum og gert einhvern óskundan að gömlum vana. Ég festi einhverja af þessum atburðum á filmu og nú eru þeir sjáanlegir á myndasíðunni minni á www.flickr.com/photos/bjoddn.

Síðast í gær hittumst við í Stekkjarholtinu, ég og Rúnar elduðum dýrindis máltíð og fjöldinn allur af Timburmönnum og meðfylgjum mætti á svæðið og við gæddum okkur á góðgætinu fram á kvöld. Tókum svo aðeins í spil þar sem mikil heift átti sér stað eins og venjulega þegar við tökum spil.

Í kvöld stefna Timburmenn svo til Akureyrar til að heimsækja Níels og Öggu á þeirra heimili... ég fer með ef ég fæ mig lausan af vakt á Pakkhúskjallaranum í tæka tíð.

 

Frekari fregnir síðar... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 16:06:51 / Bjöddn

Hægðasníkir og Gelgjutryllir

Ætli það sé ekki við hæfi að óska þeim sem villast hingað Gleðilegra Jóla. Er búinn að vera latur við að blogga undanfarið og veit ekki hvort ég nenni að gera mikið af því meðan ég er hérna heima á víkinni en reikna með að halda þessu áfram frá Kaupmannahöfn þegar ég kem þangað.

Það er ekki frá miklu að segja núna, mikið af fótboltaæfingum, mikið af vinnu, mikið af mat og gúmmelaði hefur einkennt þennan tíma síðan ég kom og svo er náttúrulega ekki hægt annað en að hafa orð á því hvað rjúpurnar eru HRIKALEGA GÓÐAR!!! Algjört undur! En ætla að fara að lesa bókina mína... allir á ball annað kvöld???


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 01:42:22 / Bjöddn

Fróðleiksmoli dagsins...

Gleymdi því í óðagoti síðustu vikna að ég átti hérna óhreifða bloggsíðu á þessu blessaða neti. En rakst á hana þegar ég googlaði mig í dag og ákvað því að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið fyrst ég átti nú þessa annars ágætu síðu. Skemmtilegir hlutir sem maður kemst að þegar maður googlar sig eins og er víst eða var inn fyrir nokkrum dögum, mánuðum eða árum. Man það ekki.

Annars var eitt þarna sem ég komst að þegar ég googlaði mig sem ég hafði bara ekki hugmynd um. Það er sú staðreynd að árið 1992 var ég skráður í stórsvig og svig 7 ára drengja á Andrésar Andarleikunum sem fóru fram á akureyri. Þetta fannst mér geysilega skemmtileg staðreynd og fór því að skoða þetta betur því ég hafði enga minningu um að hafa verið góður á skíðum og hvað þá keppt á móti. Fyrst skoðaði ég linkinn þar sem svigið var og þar fann ég Björn Hákon Sveinsson fæddan 84 í skíðafélaginu NES, hann var síðastur í sínum flokki tæpri hálfri mínútu á eftir fyrsta manni. Ég vil meina að þetta sé ekki ég enda hef ég aldrei verið í skíðafélaginu NES og hefði frekar hætt keppni en að vera í neðsta sæti. Svo skoðaði ég stórsvigið og þar stóð aftur Björn Hákon Sveinsson en núna í félaginu H, sem á sennilega að vera Húsavík. En þar sem tímarnir voru skráðir hjá hinum stóð einfaldlega "MÆTTI EKKI" hjá mér. Þar sem ég hef enga minningu um að hafa keppt á þessu móti ætla ég að setja fram tvo möguleika.

1. Í skíðafélaginu NES var drengur að nafni Björn Hákon Sveinsson sem lenti í neðsta sæti í svigi 7 ára drengja árið '92 á Andrésar Andarleikunum á Akureyri. Hann skammaðist sín svo fyrir frammistöðu sína í sviginu að hann skipti um félag eftir útreiðina og gekk til liðs við skíðafélag Húsavíkur(H). Það hins vegar var ekki nóg til að bæta sjálfstraustið og daginn eftir þorði hann ekki að láta sjá sig svæðinu og fór heim skælandi með vælubílnum.

2. Mótsritarinn hefur verið að koma úr meðferð vegna lsd notkunar og var því ennþá með vott af ofskynjunum. Hann fór því lauslega með niðurstöður mótsins og til að bæta gráu ofan á svart þá bjó hann til ímyndaðan keppanda að nafni Björn Hákon Sveinsson.

 

Veit ekki með ykkur... en ég hallast að 2! Hérna er linkurinn

(ps. skoðið einnig önnur nöfn á listanum... ýmsar hetjur sem þarna leynast!)

góðar stundir...


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 18:31:37 / Bjöddn

Knattspyrnufélag Akureyrar

Ég hef í nokkurn tíma fylgst með framgöngu mála á síðunni hans Andra Vals þar sem að hann hefur sagt frá viðureign sinni við Tónlistaskóla Akureyrar. Hann fékk sem sagt kröfu frá þeim á einkabankann sinn uppá tæp 20 þúsund og var ekki alveg sáttur eins og gefur að skilja. Ég hins vegar hló mikið af þessum skrifum og fannst allt strögglið sem hann fór í gegnum gríðarlega fyndið. En typpið er ekki lengur uppí loft því í dag fékk ég sjálfur kröfu í einkabankann minn frá Akureyri. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum fékk ég kröfu uppá 2.000 krónur frá Knattspyrnufélagi Akureyrar... KA!!! Ég veit að 2.000 krónur eru ekki margar krónur miðað við margt annað en það sem fer í taugarnar á mér er að einhver haldi virkilega að ég sé í KA og sé að fara að borga eitthvað félagsgjald???

Nú þarf að fara í einhverjar aðgerðir, því eins og Andri komst að á leið sinni í gegnum þetta ferli, er verst að gera ekki neitt í svona kröfum því þá vaxa þær bara og á endanum fær maður innheimtufyrirtæki í bakið á sér og svo sýslumann á endanum! Þannig að, hvað er fyrsta skref? Það er allavega á hreinu að ég er ekki að fara að borga neinar 2.000 krónur til KA að óþörfu!


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 18:13:43 / Bjöddn

Heimsyfirvaldið

Það kemur stundum fyrir að maður fær alveg upp í dingul af fréttum og öðru frá Bandaríkjunum. Hversu ýkt og sjúkt ætlar þetta samfélag að verða áður en fólk áttar sig á því hvert það er að stefna? Ætla að nefna tvö lauflétt dæmi...

Horfði í gærkvöldi á eina leiðinlegustu mynd seinni tíma. Hún heitir World Trade Center og er í stuttu máli um það hvað Bandaríkin eru æðislegur staður og hvað fólk stendur vel saman og er gott við hvort annað þegar eitthvað á bjátar. Myndin byrjaði á því að BNA maður #1 Nickolas Cage vaknar í húsinu sínu og kíkir á öll börnin sín áður en hann fer í vinnuna, eftir það kemur svo ca 30 mínútna atriði þar sem eru bara sýndar svipmyndir frá New York og það lá við að smjör læki af hverju strái, dúfurnar drulluðu í klósett og heimilislausum væri boðið 5 stjörnu gisting á hverjum morgni. Restin af myndinni var frekar tíðindalítil utan við ca 20 slow motion atriði með Cage þar sem hann er að öskra á samleikara sína eða sjá konu sína fyrir sér þar sem hann liggur deyjandi í rústunum. Eitt eftirmynnilegasta atriðið er þegar honum er bjargað úr rústunum og um 5000 björgunarsveitarmenn færibanda hann ofan af rústunum í þvílíkum fagnaðarlátum. Ég efast um að atburðirnir hafi verið þannig að 5000 manns hafi leitað að, ferjað niður og fagnað svo gríðarlega einum manni sem bjargaðist úr rústunum meðan 3000 aðrir lágu deyjandi fyrir neðan lappirnar á þeim. Þvílíkur og annar eins hégómi!

Hitt atriðið sem ég var að hneykslast á var frétt af því að ungur drengur sem sagðist vera með byssu við hönd var skotinn til bana af lögreglumönnum í dag. Það kom svo í ljós að drengurinn hélt á hárbusta en ekki byssu. Þetta getur svo sem alltaf gerst að einhver brjálæðingur hóti lögreglumönnum og þeir skjóti til að fullvissa sig um að hann sé ekki með byssu... EN... Ungi, geðsjúki drengurinn var SKOTINN TUTTUGU SKOTUM FRÁ LÖGREGLUNNI áður en þeir töldu hann örugglega látinn!!! HVAÐ ER AÐ??? Þeir vöruðu hann víst við að ef hann kæmi nær þá myndu þeir hleypa af en hann hélt áfram en þeir hafa örugglega ekki sagst ætla að skjóta hann 20 skotum þangað til hann andaðist ef hann tæki einu skrefi meira! Ég skil ekki svona, eru þetta ekki vel þjálfaðir menn? Getur einn þeirra ekki skotið strákinn í löppina meðan hinir gera árás á hann? Held að hugtakið "shot to kill" sé þessum mönnum aðeins of hugfangið eftir allt þetta bíómyndagláp!

gott að losa... seinna 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 23:55:43 / Bjöddn

FLICKR-IÐ

Er búinn að slugsa það að setja inn myndir í svo marga mánuði að ég ákvað að græja bara heila síðu með svona undanförnum albúmum. Setti upp flickr síðu, slóðin er:

www.flickr.com/photos/bjoddn

Verði ykkur gagn og gaman að myndunum. Kem til með að setja eitthvað fleira inn bráðum. Mæli sérstaklega með því að fólk kíki á bjórboltamyndirnar og svo myndirnar af Risk kvöldi Timburmanna.

Góðar stundir... 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21